Smásögur

Smásögur 1

Smásögurnar í þessu fyrsta bindi bera höfundi sínum vitni. Stíllinn er sérstæður og getur stundum verið erfitt að greina hvort um er að ræða smásögu, samtal, minningarþátt eða ritgerð. En hvað sem allri flokkun líður, eiga sögur Matthíasar það eitt sameiginlegt að þær eru skemmtilegar aflestrar. Í sögunum kemur Matthías víða við en viðfangsefni þeirra er gjarnan snertifletir hins forna og nýja í menningu okkar. Þar er Matthías á heimavelli. Við hvetjum alla til að kynna sér þessar sögur því eins og með önnur verk Matthíasar fer það ekki framhjá neinum við lestur þeirra að þar er meistari á ferðinni.

HÖFUNDUR:
Matthías Johannessen
ÚTGEFIÐ:
2011
BLAÐSÍÐUR:
bls. 149

AÐrar bÆkur
SEM ER VERT AÐ SKOÐA :